Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Norðangarri í garði

Það gengur mikið á hér við norðurhlið hússins   Í fyrsta lagi er svakalega kalt þarna úti núna.  Í öðru lagi eru nágrannarnir búnir að láta fella tvö stór aspartré sem voru við lóðamörkin og skyggðu bæði á þeirra hús og á okkar garð.  Það mættu fimm vaskir piltar frá einhverju garðfyrirtæki og í gang fóru keðjusagir og hviss pó eftir nokkuð puð og mikinn keðjusagarsöng lágu aspirnar í valnum.  Dálítið merkilegt að spá í hve stuttan tíma það tók að saga niður þann árafjöldavöxt.  Ég held að aspir séu ekki góð garðtré í svona litlum görðum eins og eru í þessum húsum okkar á þessum slóðum.  Aspir þurfa mikið pláss þegar þær vaxa og dafna og taka mikið til sín bæði rótarkerfið og krónan.  Þær þurfa því miklu meira pláss en til staðar fyrir slíkan gróður í meðal reykvískum garði.  Því skil ég vel að nágrannar mínir sem voru hættir að fá sól á svalirnar sínar hafi tekið þá ákvörðun að láta fella aspirnar. 

Þannig að nú verður sól lengur í norðurgarðinum mínum þetta sumarið en hingað til síðan ég flutti í þetta hús og er ég ánægð með það.  Í þessum hluta garðsins er oft mjög gott á morgnana á sumrin áður en hafgolan kemur.  En núna þessa stundina er þarna ískalt og hvasst og bara sunnlenskur norðangarri.  En þeir feðgarnir láta það ekki á sig fá.  Fermingardrengurinn ákvað nefnilega að fá að kaupa trampólín fyrir hluta af fermingarpeningunum og studdi móðirinn það heilshugar.  Fjárfest var í trampólíni í dag með öryggisneti og alles og eru þeir núna úti að bauka við að reyna að setja dýrindið saman.  Það gengur frekar hægt en þeir jaxlast þetta piltarnir.  Ég aftur á móti hlakka til að fá að prófa að hoppa á trampólíninu.  Það var keypt með extra góðri dempun þannig að það á alveg að þola mig.


Ósáttar hjúkkur

Hitti nokkar hjúkkuvinkonur mínar og fékk beint í æð þeirra útlistun á uppsögnum hjá hjúkkum og almennt um ástandið á spítölunum.  Ekki góð yfirhalning það.  Alltaf verið að spara og spara og færa saman deildir um helgar til að spara.  Þegar síðan upp er staðið þá verður ekki neinn sparnaður af öllum þessum tilfæringum aðeins erfiðleikar og þá sérstaklega fyrir sjúklingana.  Síðan segir ein þeira:  Svo koma út tekjublöðin og þar sér maður svart á hvítu hvað hinir og þessir aðilar sem maður er að vinna með hafa í tekjur.  Uppgefnar útreiknaðar tekjur þessara aðila í tekjublöðunum eru í allt öðru veldi en það sem hjúkrunarfræðingarnir bera úr býtum eftir árið.

Ein þeirra sagði að nýútskrifaður sonur sinn væri byrjaður að vinna í banka og þar væri launaleynd en hann hefði þó getað sagt henni að hann væri með tölvert hærra fastakaup en móðirin sem er með margra áratuga starfsreynslu við vinnu á sjúkrahúsum og framhaldsnám í hjúkrun að baki. 

Það er bersýnlega mikill vandi á höndum innan heilbrigðiskerfisins svo mikið er víst.  Þar takast á stálin stinn og ekkert gefið eftir.  Alltaf á að spara og spara en samt á þjónustan að vera fyrsta flokks.  Spurning hvort vandinn er ekki stærri en svo að lausn hans felist í því að berja á hjúkrunarfræðingunum?


Íslenski fáninn

var hér dreginn að hún í gær að tilefni dagsins.  Mér finnst íslenski fáninn mjög fallegur og vildi óska að fleiri flögguðu.  Ég veit að mjög margir eru með fánastöng við sumarbústaðinn sinn og flagga fánanum þar og það finnst mér flott.  En mér finnst vanta fleiri fánastangir í garðana í þéttbýlinu.   Við Gunnar vorum í brasi í fyrsta sinn sem við stóðum að því ein og sér að flagga, höfðum ekki fundið þessa fínu síðu þar sem farið er í gegnum aðferðina.  Hún er svo sem ekki flókin en við vorum ekki alveg með þetta á hreinu en vorum svo heppin að nágranni okkar hann Geir sá til okkar hjónanna og bjargaði málum.   

Danir eru mjög duglegir að nota fánann sinn, Dannebrog, og flagga honum allstaðar sem þeim dettur í hug og nota fánalitina, hvítt og rautt óspart við hin og þessi tækifæri.  Danir eru nefnilega alls ekkert kærulausir og ,,ligeglad" eins og svo margir Íslendingar halda fram að þeir séu.  Danir eru mjög passasamir um ýmsa hluti sem skipta miklu máli í sambandi við samkennd og svona ákveðna góða tegund af þjóðarstolti.  Það þarf ekkert að vera rembingur þótt maður vilji hag sinnar þjóðar sem bestan og haldi upp merki þjóðarinnar.  Ég held líka að ef við erum einlæg í okkar samhug og þjóðarstolti sé engin hætta á því að þjóðin tapist þó komi til aukinnar samvinnu við önnur lönd Evrópu.

Þakhrafninn minn sem hefur fengið nafnið Krúnkarinn er mættur á svæðið.  Hann virðist ekki hafa fundið kvenhrafninn ennþá.  Hann er hér fyrir utan gluggann hjá mér núna með sínum furðuhljóðum.  Ætla rétt að vona að einhver krummadís fari að gera vart við sig. 


Krummi krunkar úti

hér upp í þakrennu utan í húsinu mínu með mjög sérkennilegum hljóðum og athöfnum.  Meira hvað krumminn er stór svona í nágvígi.  Hann er í mjög skrítnu skapi þessi Reykjavíkurhrafn og hagar sér einkennilega.  Situr uppí þakrennunni sem er allt of lítil fyrir hann og er eitthvað að gogga í þakið og krunkar og krunkar með rámri hrafnsrödd.  Gunnar segir að þetta sé einhver ungkrummi sem sé að gera hosur sínar grænar fyrir kvenfugli sem ég hef ekki séð ennþá.  Þar kom skýringin á þessum sérkennilegheitum öllum saman mér var svona hálft í hvoru ekki alveg farið að standa á sama um þennan furðufugl. 

Furðulegir fuglar hrafnar og svo hafa þeir gaman af því að stríða hundum.  Hef oft séð það í sveitinni og finnst það reyndar alveg óborganlega fyndið.   Að sjá virðulegustu sveitahunda sem eru vel skikkaðir og alaðir og að því manni finnst bara sæmilega vel gefnir af hundum að vera láta krumma gabba sig til að elta sig geltandi niður eftir öllum túnum eins og asna trekk í trekk í vonlausum eltingarleik við fuglinn fljúgandi er betri sekmmtun en góð Chaplin ræma.  

Mér fannst ekkert skemmtilegt að horfa á fréttirnar í gærkvöldi verð að játa að ég varð hálf skelkuð að sjá alla þessa reiði sem fólkið sleppti lausu í gær.  Ætla að vona að menn finni nýjar aðferðir við að koma boðskap sínum og mótmælum á framfæri.  

En sumarið er komið - gleðilegt sumar. 


Foreldrar og börn

Mér finnst vinnudagur barna hér á landi allt of langur en ástæða þessa langa vinnudags barna er einfaldlega langur vinnudagur foreldra.  Af hverju vinna foreldrar svona lengi?  Það eru í mínum huga tvær ástæður fyrir því, margir þurfa að vinna langan vinnudag til þess að hafa í sig og á.  Hin ástæðan að mínu mati er sú tregða sem er á vinnumarkaði að hafa fólk í hlutastörfum. 

Eftir að sonur okkar kom í heiminn og fæðingarorlofið var uppurið hafði ég áhuga á því að við hjónin gætum minnkað við okkur vinnu helst bæði tvö en að öðrum kosti annað hvort okkar.  Við fórum bæði og ræddum við okkar vinnuveitendur um það hvort þetta væri einhver möguleiki.  Ekki að ræða það var svarið á báðum stöðunum.  Við vorum bæði ráðin í 100% störf og það var ekkert til viðtals að það væri eitthvað hægt að breyta því tímabundið.  Ég varð mjög skúffuð yfir þessari afstöðu hjá þessum tveimur vinnuveitendum en ég veit að þeir eru ekkert einsdæmi hvað þessa afstöðu varðar.

Ég tel að það væri miklu betra fyrir börnin ef foreldrar gætu unnið hlutastarf þannig að annað hvort foreldrið gæti verið komið heim klukkan þrjú hvern dag.  En íslenskt atvinnulíf getur ekki tekist á við slíkan vanda að hafa fólk í hlutastarfi.  Ef þeir Íslendingar sem hafa ung börn á framfæri sína færu að vinna hlutastörf þá fer íslenskt efnahagslíf á hvolf.  Til þess að halda uppi blómlegu atvinnulífi verður því að setja foreldrum stólinn fyrir dyrnar og krefjast þess að þeir skili amk. 100% starfshlutfalli.  


Vorhreinsun

er hafin á þessum bæ.  Var að vinna í henni í garðinum í gær í fínu veðri.  Hraunhleðslan við gangstéttina kemur mjög illa undan vetrinum, hefur öll gengið til og frá og detta hraunhellurnar út á gangstétt.  Þetta gengur ekki og verðum við að fara í töluverðar lagfæringar á hleðslunni þetta vorið.  Fleiri en ég hafa notað tækifærið í gær og verið að hreinsa til í sínum görðum og hefur einhver slíkur aðili farið af stað með afrakstur verksins í Sorpu í kerru eða einhverju álíka íláti en var svo almennilegur að skilja eftir út á götu hér fyrir framan húsið góðan hluta af einu tré.  Gunnar hélt að ég hefði verið svona stórtæk í vorhreinsuninni og slátrað eins og hluta af einhverju af okkar trjám svona í  sveiflunni og skilið það eftir út á götu.  Hann var reyndar með töluverðan undrunartón í röddinni þegar hann var að spyrja mig út í þetta verklag hjá mér.  En ég var ekkert sökudólgurinn og hann fór síðan út og dröslaði greinunum upp á gangstétt.  En ég er hissa á því að sá sem stóð í þessum greinarflutningum hafi ekki áttað sig á því að hálft hlassið hjá honum hefur dottið af á leiðinni í Sorpu.  Nema honum hafi verið slétt sama - það gæti vel verið.

Magni og táningarnir

Gærdagurinn var mikill tónlistardagur hjá mér og það sérstaka við daginn var að tónlistin var að miklu leiti flutt af táningum.  Fyrst heyrði ég í unglingum úr Hagaskóla flytja lög úr uppfærslu þeirra á Bugsy Malone.  Mér fannst þau standa sig prýðilega.  Síðan brunuðum við í Hafnarfjörðinn að hlusta á afrakstur framhaldsskólakóramóts á tónleikum sem haldnir voru í Flensborgarskóla.  Syninum leist nú ekkert á blikuna þegar við sáum tónleikaskrána en tónleikarnir byrjuðu klukkan hjálf fimm og samkvæmt dagskránni áttu þeir að standa til klukkan sjö.  Það fannst Jóhanni Hilmi full mikið á sig lagt, þó hann vildi gjarnan hlusta á systur sína.  Ég sagði við hann að við gætum alveg farið fyrr ef okkur leiddist mikið. 

Til að gera langa sögu stutta þá leiddist okkur náttúrulega ekki neitt, mjög gaman á þessum tónleikum og mikil fjölbreytni og tónleikarnir stóðu samt til klukkan tíumínutur í sjö.  En ég sem sérstakur Magna aðdáandi verð samt að segja að mér fannst rosalega gaman að því að hann kom þarna fram ásamt kór Fjölbrautaskóla Suðurlands en kórinn, ásamt hljómsveit og Magna eru að undirbúa Queen sýningu sem þau verða með í maí.  

Lög þeirra Queen manna eru mjög flott og ekki heiglum hent að syngja lögin.  En mér fannst flutningur laganna þriggja takast vel hjá kór, hljómsveit og Magna.  Verður örugglega gaman að þessum fyrirhuguðu tónleikum þeirra í maí.  Set hér inn eitt lagið sem þau voru með þarna.

 

 


Eftir gullæðið

Emmylou Harris, Dolly Parton og Linda Ronstadt þe. the Trio syngja hér á tónleikum hið frábæra lag Neil Youngs After the Gold Rush.  Ég fann textann á netinu og ef maður fylgist með í laginu hjá Tríóinu þá er aðeins búið að breyta honum svona smá.  Mér finnst þær allar frábærar söngkonur þessar þrjár sem eru hér saman komnar.  Veit ekki hvort þær eru mikið að troða upp saman sem Tríóið en ég hefði ekkert á móti því að komast á tónleika með bara einhverri af þeim eða þeim öllum saman það væri náttúrulega toppur.

After the Gold Rush.

Well, I dreamed I saw the knights in armor coming, saying something about a queen.

There were peasants singing and drummers drumming and the archer split the tree.

There was a fanfare blowing to the sun that was floating on the breeze.

Look at mother nature on the run in the nineteen seventies.

I was lying in a burned out basement with the full moon in my eyes.

I was hoping for replacement when the sun burst thru the sky.

There was a band playing in my head and I felt like getting high.

I was thinking about what a Friend had said I was hoping it was a lie.

Well, I dreamed I saw the silver space ships flying in the yellow haze of the sun,

there were children crying and colors flying all around the chosen ones.

All in a dream, all in a dream the loading had begun.

They were flying mother nature's silver seed to a new home in the sun.


Miða á tónlistarhátíðina Bræðsluna

á Borgarfirði eystra 25. júlí - 27. júlí, gott væri að vita hvernig hægt verður að nálgast þá.  Minnir að síðast hafi orðið uppselt á flesta tónleika hátíðarinnar á fimm mínútum eða eitthvað álíka.  Ég var eitthvað að spá í þessa hátið í fyrra en áttaði mig allt of seint á því hvað þetta er vinsæl hátið og þá voru allir miðar löngu búnir.  Mig langar að fara í sumar og þarf að komast að því hvenær, hvar og hvernig miðabiðröðin er svo ég missi ekki aftur af ballinu.  Damien Rice, Magni og Emilíana Torrini - pottþétt.
mbl.is Damion Rice leikur í Bræðslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byggingavöruverslanir

eru skemmtilegar búðir að mínu mati.  Nú er 40% afsláttur af öllum vörum í BYKO vesturíbæ.  Ég frétti af þessari útsölu í vinnunni í gær og dreif mig á staðinn á leiðinni heim úr vinnu.  Eftir að ég kom heim með bílinn dreif bóndinn sig síðan á sömu útsölu.  Og nú standa eftirfarandi hlutir keyptir með 40% afslætti á stofuborðinu:  Hamar, lugt, lampaolía, 2 málningarúllur 4 málningapenslar, 2 sett af vinnuhönskum, kuldahanskar, brassó, gólfbón, dims til að setja undir stóla svo þeir rispi ekki parketið, fatahreinsirúllur, kíttisspaði, tveir strigapokar sem eiga að þola 50 kíló, vasahnífur og einn poki af vatnskristölum.  Vatnskristallar eru þarfaþing sem ég set blanda saman við moldina sem ég set í útiblómapottana mína svo blómin mín þrífist nú vel á sumrin þótt heimafólkið sé ekki alltaf til taks við vörkvun.  Sum sé margt og mikið hægt að kaupa í byggingavöruverslununum.  Allt dótið kostaði um sex þúsund krónur.  Keypti reyndar þrusugóðan hamar sem var dýr.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband