Laxamýri á Dalvík
6.9.2009 | 02:02
Ég sá þetta hús ásýndar á Fiskideginum mikla á Dalvík um daginn, reyndar á Fiskisúpudeginum mikla því við fjölskyldan fórum á fiskisúpudaginn til tilbreytingar en ekki á Fiskidaginn. Ég varð hrifin af litavali hússins en fannst um kvöldið að það væri grátt en komst að því á rigningadegi um síðustu helgi þegar við vorum í berjaferð að Laxamýri er ekki grá heldur græn. Gunnar minn veit ekki alveg af hverju þetta hús á Dalvík heitir Laxamýri, etv. einhver tenging yfir í Þingeyjarsýslu??
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.