Færsluflokkur: Dægurmál
Hvað er mátulegur prósentumunur?
13.9.2008 | 08:19
Formaður Samfylkingarinnar sagði í samtali við Stöð 2 í gær að vilji væri fyrir því í ríkisstjórninni að leiðrétta kjör ljósmæðra. Það væri hins vegar of mikið í einu skrefi að leiðrétta laun ljósmæðra um 25%.
,,Það væri fróðlegt að vita hvað henni þætti mátulegt að konur væru mörgum prósentum undur körlum í launum" segir Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélagsins í lok þessarar fréttar í Stöð 2 í gærkvöldi vegna þessara ummæla formanns Samfylkingarinnar. Ég tek undir þetta hjá formanni Ljósmæðrafélagsins. Ég tel það svo sannalega tímabært að Samfylkingin leggi spilin á borðið og upplýsi hvað fylkingin telur mátulegan prósentumun á kjörum karla og kvenna hér á landi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gliðnun hjá hinu opinbera
12.9.2008 | 07:05
Það er mjög merkilegt að spá í öll þau orð og orðasamsetningar sem notaðar eru þegar fjallað er um launamun kynjanna. Ótrúlega margir telja að það sé enginn launamunu á milli kynja. Meðallaun kvenna í öllum starfstéttum sé lægri en karla, það sé jú rétt en en það séu skýringar á því. Skýringarnar eru þær að konur séu verr menntaðar en karlar, vinni styttri vinnutíma en karlar, velji sér lægri launaðar starfsgreinar en karlar, konur séu ekki jafn duglegar að krefjast hærri launa en karlar, séu ekki jafn duglegar að fá hærri og betri launaðri stöður og karlar og konur séu ótryggari starfskraftar en karlar og svo má lengi telja. Því sé það í raun eðlilegt að karlar hafi hærri meðallaun en konur og í raun konunum sjálfum að kenna að þær hafi ekki sömu meðlalaun og karlar.
Til að reyna að komast til móts við þessa umræðu hefur verið búið til fyrirbærið óútskýrður launamunur. Þá á að vera búið að meta ýmsa áðurnefnda þætti inn í reiknimódelið. Mér hefur svo sem fundist ágætt að menn séu eitthvað að reyna að bæta umræðuna með því að koma með slíkar reikningskúnstir því það er náttúrulega ekkert hægt að ræða málin um launamun kynjanna við fólk sem heldur því fram að það sé enginn slíkur launamunur á Íslandi. Ég er samt ekki viss, þó umræða sé góð þá verð ég að segja að þessi umræða gengur hvorki lönd né strönd. Konur einfaldlega lægra metnar ern karlar í þessu þjóðfélagi. Það er augljóst og sést svart á hvítu á mun á kjörum kvenna og karla. Allt sparital og hjal um jafnrétti kynjanna er aðeins á orði hjá forsvarsmönnum þjóðarinnar og atvinnulífs. Upp á borðum er annað. Þar viðgengst sprungulaust misrétti.
Og nú er komið enn eitt orðið varðandi launamuninn - gliðnun. Nú hefur orðið gliðnun á kynbundnum launamun hjá hinu opinbera. Og Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra er með þrjár nefndir á sínum snærum sem hafa nú fengið það viðbótarverkefni að skoða hvað það er í hinu opinbera kerfi sem orsakar þessa gliðnun. En á meðan nefndirnar eru að störfum þá skjögra sængurkonurnar heim með nýfæddu börnin sín sex klukkustundum eftir að hafa komið þeim í heiminn. En það ástand hlýtur að lagast því nú er búið að kæra ljósmæður fyrir að hafa sagt upp störfum. Það hlýtur að vera hægt að kæra þær inn á sjúkrahúsin aftur því eins og komið fram hjá formanni samninganefndar ríkisins að samninganefnd ríkisins hafi ekki breytt um skoðun síðan árið 1962. Þannig að ekki fer nefndin að semja um einhverja sérleiðréttingu launa hjá slíkri kvennastétt sem ljósmæðrastéttin er.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af hverju er þessi hundur ekki í bandi
6.9.2008 | 07:53
veistu ekki að lausaganga hunda er bönnuð í Reykjavík- þetta kallaði ég á ungan mann sem gékk hér framhjá húsinu í gær. Ég var að fara hér úr húsi þegar inn í innkeyrsluna mína kemur stærðar hundur. Hann hljóp að bílnum mínum og fór eitthvað að hnusa að honum og lyfta öðrum afturfæti. Ég varð hin versta í skapinu að sjá þennan hundræfil og athafnir hans og ætlaði að reka hann í burtu þegar ungi maðurinn með barnakerruna kom gangandi fyrir hornið og kallaði til hundsins. Hann var bersýnilega að tölta með barnið á leikskólann og hundurinn fékk að skokka með morgunskokkið sitt frjáls og óbundinn og gat gert hvert sitt stykki hvar sem hundinum sýndist. Ungi maðurinn leit á mig eins og ég væri brjáluð kerling í Vesturbænum og fannst ég ekki vera þess virði að yrða á mig einu orði né svara fyrirspurn minni.
Mér finnst alveg óþolandi þegar fólk sýnir hvorki vilja né löngun til að fara eftir settum reglum. Við búum hér í Reykjavík í borgarumhverfi. Það er ekkert hægt að líða það að hundar gangi hér lausir um. Hafi fólk virkilega þörf fyrir það að halda hunda hér innan borgarmarkanna þá verður það fólk að virða þær reglur sem settar eru. Og þær eru þannig að lausaganga hunda er bönnuð. Punktur. Ég vildi óska að ég hefði nennt að kalla á lögregluna að handtaka þennan hund sem hér um ræðir. Geri það á mánudaginn ef hundurinn kemur aftur til að gera sín stykki hér í mína innkeyrslu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Göngum yfir brúna
2.9.2008 | 17:48
Ég átti í gamla daga eitthvað erfitt með að læra þennan texta við þetta lag - Göngum yfir brúna. Ég beið bara róleg þar til kom að viðlaginu en ég hafði þó náð textanum í því. Þetta er gamalt og bara ágætis stuðlag og rifjaðist upp fyrir mér í dag þar sem ég var á akstri í bílnum mínum og lagið var spilað í útvarpinu. Allt í einu heyrði ég bara ágætlega textann hjá honum Pálma og er pínu hissa á því að ég hafi ekki kunnað hann.
Göngum yfir brúna
Sagt er að sumir vilji verksmiðjur
út við sérhvern tanga og fjörð.
Sagt er að aðrir vilji stóriðju
út um sína fósturjörð.
Göngum yfir brúna milli lífs og dauða,
gín á báðar hendur gjáin dauðadjúpa
Landið okkar sem var laust við skít
verður leigt gegn gulli í hönd.
Af græðgi gerumst við svo einskisnýt
að okkur gleypa önnur lönd.
Göngum yfir brúna...
Af öllu sem við gerum rangt og rétt
við reyndar lærum aldrei neitt.
Og eftir dauðann hef ég nýskeð frétt
að aurum enginn geti eytt.
Göngum yfir brúna...
Höfurndur Magnús Eiríksson
Dægurmál | Breytt 5.9.2008 kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rifsber í hádeginu
28.8.2008 | 18:27
Hagaskóli er byrjaður og samkvæmt nýrri stundaskrá þá fær sonurinn aðeins 30 mín. hádegishlé en í fyrra var hádegishlé í 50 mínútur. Það gerði það að verkum að hann fór mjög oft heim til sín í hádeginu í stað þess að borða uppí skóla. Því var spurning í mínum huga hvort það borgaði sig fyrir hann að vera í mötuneytinu því hann kom svo oft heim í hádeginu. En í gærmorgun áður en hann fór í skólann tilkynnti hann mér að þetta væri of stuttur tími til að standa í því að drífa sig heim þannig að hann vildi vera í mötuneytinu í vetur. Hann fór með nesti í skólann því ég var ekki viss um að ná því að borga fyrir hann þannig fyrir þennan sama dag.
Í gær þegar ég kom heim spurði ég gagnfræðaskólapiltinn hvernig þetta hefði farið hjá honum í hádeginu. Þá fékk ég þessa frásögn:
Jú mamma, ég fór fram og ætlaði að borða nestið sem ég hafði með mér en ég gleymdi skólatöskunni með nestinu inní stofu og stofan var læst. Þá ætlaði ég að fara heim og fá mér eitthvað að borða heima en þá fattaði ég að lykilinn var í skólatöskunni. Svo ég fór bara hingað heim og fékk mér rifsber að borða.
Þannig fór það hann lifði bara af landsins gæðum, svo sem nóg af rifsberjum ennþá hér í garðinum þó ég sé búin að gera rifsberjahlaup úr 2,5 kílóum af berjum. Ég held að Jóhann Hilmir sé dálítið líkur afa sínum Sigurjóni heitnum. Eitthvað náttúrubarn á ferð þarna. En hann var algjörlega löglegur í mötuneyti Hagaskólans í dag.
Dægurmál | Breytt 29.8.2008 kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Furðustrendur
27.8.2008 | 06:54
Ég hef verið þeirrar skoðunar lengi að Skagafjörðurinn sé mikil perla. Lengi vel fannst mér eins og hann nyti ekki nægilega sannmælis né vinsælda hjá ferðamannaiðnaðinum. Mér fannst eins og öllum ferðamönnum væri beint til Akureyrar og á Mývatn og á alla fallegu staðina í Þingeyjarsýslu með fullri virðingu fyrir þeim. En í firðinum Skaga er nefnilega margt hægt að skoða og gera - sagan drýpur þar af hverju strái, hægt að fara í siglingu út í Drangey og Málmey, skoða fjöll og firnindi ef menn vilja, nú og svo eru það ísbirnirnir og allt það. Vissulega hefur á siðustu árum ýmislegt gerst í Skagafirðinum til að nýta betur þau tækifæri sem fjörðurinn býður uppá til afþreyingar fyrir ferðamenn. Þar má nefna flúðasiglingarnar í Jökulsánum, Vesturfarasetrið á Hofsósi og nýja skíðaaðstaðan í Tindastól svo fátt eitt sé nefnt. Svo er alltaf sól í Blönduhlíðinni en því halda þeir fram sem þar búa.
Pabbi og mamma eru Húsvíkingar og tifuðu þar um fjöll og firndindi í leit að berjum þegar þau bjuggu á því svæði og áttu fullt af leyniberjastöðum. Þau hafa nú fundið hina ýmsustu berjaleynistaði í Laxárdal og uppí fjalli við Sauðárkrók og hafa nú fyllt frystikistuna sína af svörtum aðalbláberjum. Nú í morgunsárið les ég það síðan í blaðinu að við Héraðsvötn séu Furðustrendur þar sem eru hvít krækiber og íslensk villt jarðaber. Hann leynir nefnilega svo á sér Skagafjörðurinn. Alltaf eitthvað nýtt og nýtt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Menningarnótt
23.8.2008 | 07:43
Við vorum að rifja það upp við hjónin hvenær við tókum fyrst þátt í menningarnótt. Gunnari telst svo til að það hafi verið árið 1996. Ég held örugglega að fyrsta menningarnótt í Reykjavík hafi verið árið 1995. Þá var Jóhann Hilmir á fyrsta ári og við tókum það árið ekki þátt í einu né neinu og ég held að við höfum ekki verið í bænum en er ekki viss. Allavega höfum við verið mjög dugleg við að nýta okkur þennan skemmtilega dag sem menningarnæturdagurinn er allt frá því við byrjuðum þarna á annari menningarnóttinni semsagt.
Þetta fyrsta sinn okkar á menningarnótt voru hjá okkur þýskir vinir Gunnars, Kristjana og Bernt. Gunnar og Kristjana hafa verið pennavinir síðan þau voru 18 ára. Við Gunnar höfum farið í heimsókn til þeirra til Munchen og þarna voru þau semsagt í heimsókn hjá okkur. Ég man eftir því að það var grenjandi rigning þessa menningarnótt og við drusluðum þeim niðrí bæ um klukkan átta um kvöldið með Jóhann í kerru og Elínborgu Huldu í eftirdragi. Mig minnir að þeim hafi fundist þetta hálf skrítin uppákoma hjá okkur og svona yfirleitt en ég lét mig ekki og við skoðuðum eitt og annað í bænum sem mér leist vel á. Svo drifum við okkur heim hundblaut og köld en bara ánægð. Þegar heim var komið og við sest inní stofu þá heyrðum við allt í einu drunur og dynki. Það var flugeldasýningin sem var þá frá Tjörninni. Menningarnæturstjórinn ég hafði ekkert kveikt á þessari fugeldasýningu! Við drifum okkur út og horfðum á sýninguna út á blett. Síðan hef ég ekki klikkað á þessu atriði á menningarnótt svo það sé alveg á hreinu.
Dægurmál | Breytt 5.9.2008 kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Garðveisla
20.8.2008 | 06:59
Ég fór í garðveislu í gær. Vinkona mín hélt garðveisluna ásamt vinkonu sinni sem býr í París og er hér á landi í heimsókn. Þær stöllurnar héldu einnig garðveislu um svipað leiti í fyrrasumar. Þá var veðrið eitthvað mjög svipað og það var í gærkvöldi. Það var margt um manninn í garðveislunni og allir mennirnir voru kvennmenn. Mjög gaman. Ég hitti þar fyrir dönskukennara minn frá Borgarnesárunum sem hefur kennt í nokkrum menntastofnunum eða um níu talsins. Hún bjó í þrjú ár í Borgarnesei og ég var svo heppin að hafa hana sem kennara. Hún er besti dönskukennari sem ég hef haft.
Það var uppi töluverður fótur og fit í Borgarnesi man ég þegar þessi dönskukennari hóf kennsluna í Borgarnesinu. Málið var að þessum kennara fannst mjög gott að hafa stílabækur bekkjanna í ákveðnum litum, þe. fjórði bekkur hefði bláar stílabækur, fimmti bekkur rauðar o.s.frv. Þannig var hún alltaf með á hreinu hvaða bekk hún væri að fara yfir. Því var í fyrsta tímanum hjá þessum kennara gefin ströng fyrirmæli um hvaða lit og stærð af stílabók maður átti að kaupa fyrir dönskuna. Ég man að það urðu margir furðu losnir yfir þessu uppátæki kennarans.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tjaldstæðafælni
16.8.2008 | 14:29
Mér finnst fínt að sofa í tjaldi svona nótt og nótt. Við notum tjaldið okkar og förum í útilegur þegar okkur hentar og eftir því sem vindar blása á sumrin. Hins vegar er í seinni tíð farin að hrjá mig ákveðin tjaldstæðafælni. Síðasta tjaldútilega mín á skipulagt tjaldstæði var fyrir þremur eða fjórum árum en þá hittumst við hópur á tjaldstæðinu í Húsafelli. Tjaldstæðið var fullbókað þá helgi og margt um manninn. Mér blöskraði alveg umferð bíla um tjaldstæðið. Sífellt var eins og einhver þyrfti að vera að ná í eitthvað sem vantaði eða vera að fara í sund eða eitthvað. Og alltaf keyrt af stað á bílnum en alls staðar voru lítil börn út um allt á tjaldstæðunum að leika sér. Sem betur fer gerðist ekkert en mér fannst þetta hreinlega mjög óþægilegt. Um nóttina tók síðan við mikill söngur í öllum hitörunum í fellihýsunum allt í kringum okkur. Ekki mikil friðsæld sem var ríkjandi í þeirri útilegu.
En svo heyrði ég um enn nýja græju sem Íslendingar eru farnir að hafa með í útileguna. Samverkakona mín fór á tjaldstæði sem eru við Hítarvatn og tjaldaði þar. Stuttu frá voru saman þrjár fjölskyldur með þrjú fellihýsi og rafstöð. Um kvöldið var rafstöðin sett í gang til þess að börnin sem voru með í för gæti farið í tölvuleiki eða horft á DVD. Ég hef ekki lent í að tjalda nálægt svona græjuvæddu fólki en tjaldstæðafælnin lagast ekki mikið við þessa frásögn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þakbras
14.8.2008 | 07:06
Við komumst að því um daginn að þakið á bílskúrnum lekur. Bílskúrinn okkar er tvískiptur og eiga systurnar á efri hæðinni annan helming bílskúrsins, þann innri og við Gunnar hinn helminginn, þann ytri. Á okkar bílskúr eru tveir vegggluggar en á bílskúr systranna eru fjórir þakgluggar. Og við tvo af þessum fjórum þakgluggum var leki. Þær óskuðu eftir aðstoð við að meta skaðann og fórum við Gunnar í rannsókn á ástandinu um helgina. Þakgluggarnir eru gerðir úr báruplasti og var komið gat á einn þeirra, einhver hafði bersýnilega stigið á gluggann. Hjá hinum glugganum var ekki neitt sérstakt hægt að sjá nema að þar er leki.
Það var tekin sú ákvörðun um helgina að athuga hvort við sjálf gætum ekki reynt að gera við þessa þakglugga. Við fórum síðan í fyrradag hjónin af stað og fjárfestum í 3ja metra langri báruplastplötu í Húsasmiðjunni. Við vorum ekki alveg viss hvernig best væir að ná henni í sundur í þrjá búta en í gær þá réðumst við á plötuna með sög að vopni og okkur tókst með smá brasi að saga plötuna í sundur. Síðan fóru þeir feðgar uppá bílskúrsþakið og náðu að taka tvö glugga frá og setja nýju báruplastplöturnar þar í staðinn. Það var töluvert bras en tókst á endanum. En þá sáum við að það hafði verið kíttað alveg meðfram plötunum áður en þær voru festar. Þannig að ekki var hægt að festa niður plöturnar í gær þar sem ekkert kítt var til á staðnum. Þetta er svona ekta iðnaðarmannabras hjá okkur þar sem sífellt þarf að fara út í búð og kaupa eitt og annað sem þarf til framkvæmda. En framkvæmdum verður haldið áfram í dag eftir að búið verður að fjárfesta í einhverskonar kítti.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)