Færsluflokkur: Dægurmál
Kaffivélin mín
13.8.2008 | 07:03
er komin úr viðgerð. Þetta er alveg einstök expressó kaffivél sem ég fékk líka í fertugsafmælisgjöf eins og hústjaldið mitt góða. Það er eitthvað sigti í kaffivélinni sem stíflast og þá kemur ekkert vatn kaffimeginn. Ég get ekki hreinsað eða lagað þetta sigti sjálf heldur verð að fara með vélina í viðgerð. Þetta er annað sinn á ferlinum sem sigtið stíflast en núna var kaffivélin smá tíma í viðgerðinni og kom það til sumarfrí hjá mér með ferðalögum og fjarveru frá höfuðborgarsvæðinu.
Ég hef saknað kaffivélarinnar minnar þessar vikur sem hún var ekki hér til staðar. Mér finnst nú samt eitthvað dálítið dekadent að vera að sakna kaffivélar, mikið lúxusvandamál þar á ferð. En ég er með aldrinum farin að hafa miklu ákveðnari smekk fyrir kaffi. Ég hef líka minnkað kaffidrykkjuna mikið og þar sem kaffikvótinn hefur verið minnkaður þá vil ég bara nota þann litla kvóta til að drekka almennilegt gott kaffi. Sem er hreinlega einna best úr kaffivélinni minni verður að játast. Og þar með ætla ég að fá mér annan bolla af Cappochino kaffi svona snemma morguns í tilefni af því að 12 ára kaffivélin er komin heim úr viðgerð eldspræk.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skyr, ber og rjómi
30.7.2008 | 16:45
er tær snilld. Það eru komin ber, þroskuð aðalbláber í Dalinn væna. Já ótrúlegt en satt. Maður þarf samt að hafa dálítið fyrir því að týna fullt eitt kaffibox af þroskuðum aðalbláberjum núna enda ekki kominn ágúst. En það munar um hvern sólardaginn þarna fyrir norðan og útlítið er svart maður eða kannski ætti maður að segja blátt? Lítur rosalega vel út með berjasprettuna þarna fyrir norðan þetta árið amk. Jóhann Hilmir týndi í eitt box í fyrradag sem við borðuðum upp til agna með skyri og rjóma í gærkvöldi eftir að við vorum komin hingað á vesturhorn landsins. Ekki margt sem slær út aðalbláberjum í mínum huga, held að mér finnist þau vera bara the best of the best of the best sir, ekki annað en það.
Í landinu mínu sá ég líka að ef til vill koma hrútaber hjá okkur en það er í fyrsta sinn sem ég sé það. Hrútaberjalyngið var ekki í okkar landi fyrstu árin okkar með hólfið í Dalnum en síðustu ár hefur það verið að búa um sig hér og hvar. Og er núna í fyrsta sinn sem útlit er jafnvel fyrir að því takist að þroska einhver ber.
Hér í Reykjavík er þvílík sól og sæla að ég hef ekki fyrr komist í tæri við annað eins á þessu landshorni. Læt hér fylgja með eftirmiddagsólarmynd af litla húsinu við Akurhól, Skíðadal, Dalvíkurbyggð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20 ár - postulínsbrúðkaup
16.7.2008 | 07:46
Við eigum afmæli í dag Gunnar og ég. Í dag eru 20 ár síðan við giftum okkur í kirkjunni á Völlum í Svarfaðardal. Samkvæmt upplýsingum á brúðkaupsvefnum er það postulínsbrúðkaup. Brúðkaupsdaginn okkar þann 16. júlí 1988 skein sól í heiði í Skíðadal og Svarfaðardal. Það var mjög heppilegt því við vorum með veisluna heima í Syðra-Hvarfi í vélageymslunni og það hefði verið óþægilegra ef hefði verið mikil rigning og/eða kalt á giftingardeginum. Sr. Jón Helgi Þórarinsson gaf okkur saman en þá var hann prestur á Dalvík. Kirkjukór Svarfdæla söng og Ólafur Tryggvason var organisti. Öllum viðstöddum, vinum, vandamönnum og kór var boðið í kaffiveislu beint eftir brúðkaupið sem haldin var í vélageymslunni á Syðra-Hvarfi í Skíðadal. Ég held að u.þ.b. 80 manns hafi komið í kaffiveisluna hjá okkur. Kaffibrauðið var allt heimagert. Í veislunni spilaði Jón Helgi á gamalt orgel sem var staðsett í vélageymslunni og pabbi flutti okkur brúðhjónunum brúðkaupskvæði.
Eftir kaffisamsæti fóru heimamenn heim til sín en aðkomufólkið settist út í brekkuna við Lambatúnið og þar var setið dágóða stund í sól og sumaryl gítar dreginn fram og sungið og sungið. Síðan höfðum við mat fyrir aðkomufólkið, lax sem pabbi hafði veitt og heimareykt hangikjöt frá tengdapabba. Fínn dagur og nú eru semsagt tuttugu ár síðan. Við vorum sammála um það hjónin í gærkvöldi þegar Gunnar spurði mig hvort ég vissi hvaða dagur yrði á morgun að þessi tími hefur verið ótrúlega fljótur að líða. Einnig finnst okkur báðum það eilítið skringilegt að það séu virkilega 20 ár síðan við giftum okkur - eða eins og Gunnar missti út úr sér í gærkvöldi - ótrúlegt -
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Norðaustlæg eða breytileg átt
26.6.2008 | 17:24
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Léttskýjað um norðvestan- og vestanvert landið, en annars skýjað með köflum og víða skúrir fram á kvöld. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestantil. Svipað veður fram eftir degi á morgun, en norðvestan 5-10 og fer að rigna norðantil á landinu undir kvöld og kólnar heldur.
Svona lítur veðurspáin út þessa stundina, samanber heimasíðu Veðurstofu Íslands. Mér finnst veðrið sem af er sumri líkjast mjög mikið veðrinu sem var í fyrra. Þá lá hann í norðaustlægum eða breytilegum áttum, landáttum endalaust og það gerir það að verkum að það er frekar kalt fyrir norðan eða kannski er réttara að segja að besta veðrið sé þá sunnan-og suðvestanlands. Ég vona að einhvern tímann snúist veðrið í ákveðnari vestan og sunnanáttir og allavega fyrr en í fyrra því sú átt kom ekki fyrr en í ágúst og þá rigndi hér fyrir sunnan látlaust allan ágústmánuð. Man ekki betur. En veðrið er svo sem dásamlegt hér á þessu horni þessa dagana það vantar ekkert upp á það. Vil bara helst að hann fari eitthvað í sunnanáttir fyrr í sumar en síðasta sumar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Haddý Sverris.
23.6.2008 | 19:48
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eitt ár í bloggheimum
22.6.2008 | 13:14
Í dag hef ég bloggað í heilt ár þar sem ég byrjaði að 22. júni 2007. Eins og áður hefur komið fram hjá mér þá kom það mér sjálfri á óvart hve ég hef gaman af því að blogga. Meðalheimsóknir á síðuna mína eru um 25 ip tölur á dag. Í byrjun bloggaði ég bara um helgar en síðustu þrjá mánuði eða svo hef ég bloggað að mestu daglega en ég blogga ekki í vinnunni. Ég hef fjórum sinnum bloggað frétt á mbl.is en þá fær maður garanterað 100 heimsóknir. Þær bloggfærslur sem ég hef fengið margar heimsóknir inná án þess að blogga frétt á mbl er blogg um tónlist og tónlistarmenn. Ég hef fengið mjög margar heimsóknir á slíkt blogg, nú síðast voru yfir 100 ip tölur sem skoðuðu bloggið mitt um tónleika James Blunt.
Mér finnst gaman að fólk skuli lesa bloggið mitt og er mjög ánægð með heimsóknir á síðuna mína. Ég fæ ekki mörg komment á bloggið mitt og er get ekki svarað kommentum fyrr en seint og síðar meir þannig að sá kanall er ekkert sérlega virkur hjá mér. Ég les blogg hjá mjög mörgum sjálf en er ekki dugleg að skilja eftir komment í slíkum heimsóknum mínum. Þeir bloggarar sem ég les daglega eru: Nanna frænka, og á hennar síðu síðan Hildigunnur Rúnarsdóttir og á hennar síðu síðan Veiga. Síðan bloggvinir mínir Salvör og Dögg og aðrar frænkur af bloggsíðu minni, bloggararnir á eyjunni finnst mér mjög góðir les alla sem eru að blogga þar. Aðrir fastir liðir eru nú ekki hjá mér heldur fer ég inná blogggáttin.is og síðan bloggið á mbl.is. Þar er yfirleitt eitthvað áhugavert í gangi en mér finnst mjög gaman að skoða þar bloggflokkinn tónlist. Þar finn ég yfirleitt eitthvað sem ég hef gagn og gaman af.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gæfuspor á Króknum
20.6.2008 | 11:34
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tangó fundin
19.6.2008 | 12:48
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Boltabullunnar sæludagar
17.6.2008 | 18:46
Heimsóknarvinur síðunnar hefur sent inn enn eina vísuna, þessi vísa heitir Boltabullunnar sæludagar og er ort við lagið Svantes lykkelige dag.
Boltabullunnar sæludagar
Ó þetta er indælt stríð
eilíf fótboltatíð.
Í sófanum uni ég sæll
sjónvarpsglápandi þræll.
Fótboltabullunum flest er í hag,
og ísbjörn líka í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sigling
16.6.2008 | 17:06
Við fórum í gær í óvissuferð hjónin og enduðum á því að sigla niður Vestari Jökulsá í Vesturdal Skagafirði. Mér leist sannast að segja ekkert á blikuna og hefði að öllum líkindum ekki farið í þessa óvissuferð ef ég hefði vitað hvert ferðinni væri heitið. En óvissuferð er ekki óvissuferð nema maður viti ekki hvað á að gera. En þó ég væri hálfhrædd þá ákvað ég að láta hræðsluna ekki ráða för og dreif mig með í ,,léttari" ferðina. Ég hélt að þá ætti maður jafnvel að fara á land og bera bátinn þar sem væru flúðir og þess háttar en svo var ekki. Bátarnir sem fóru léttari ferðina fóru niður sömu á og hinir bátarnir sem fóru í það sem kallað var alvöru ferð.
Það er fyrirtækið Hestasport-Ævintýraferðir sem býður upp á þessar ferðir. Það var fjölskrúðugur hópurinn sem voru leiðsögumenn okkar og stjórnendur í bátunum. Tveir voru frá Nepal, einn frá Englandi, ein stúlka var frá Sauðárkrók og önnur stúlka var þarna erlend, veit ekki hvaðan hún er. Okkar skipper var Cris frá Kanada sem hefur víða unnið sem leiðsögumaður í flúðasiglingum. Hann mælti með ferð í Austari Jökulsá en hún er í erfiðisklassa 4. Hann var duglegur að plögga hann Cris og mælti sérstaklega með 3ja dag ævintýraferðinni sem boðið er uppá. En mér fannst bara gaman að sigla á Vestari Jökulsá þótt ég hefði verið smeik og mér datt alls ekki í hug að hoppa fram af klettinum né fara í sundsprett ánni. Ég mæli bara svo sannalega með svona ferð og ég gæti alveg tekið það upp að fara einhvern tímann í ferð í Austari Jökulsána. Núna þegar maður orðinn reynslunni ríkari.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)