Menningarnótt
23.8.2008 | 07:43
Við vorum að rifja það upp við hjónin hvenær við tókum fyrst þátt í menningarnótt. Gunnari telst svo til að það hafi verið árið 1996. Ég held örugglega að fyrsta menningarnótt í Reykjavík hafi verið árið 1995. Þá var Jóhann Hilmir á fyrsta ári og við tókum það árið ekki þátt í einu né neinu og ég held að við höfum ekki verið í bænum en er ekki viss. Allavega höfum við verið mjög dugleg við að nýta okkur þennan skemmtilega dag sem menningarnæturdagurinn er allt frá því við byrjuðum þarna á annari menningarnóttinni semsagt.
Þetta fyrsta sinn okkar á menningarnótt voru hjá okkur þýskir vinir Gunnars, Kristjana og Bernt. Gunnar og Kristjana hafa verið pennavinir síðan þau voru 18 ára. Við Gunnar höfum farið í heimsókn til þeirra til Munchen og þarna voru þau semsagt í heimsókn hjá okkur. Ég man eftir því að það var grenjandi rigning þessa menningarnótt og við drusluðum þeim niðrí bæ um klukkan átta um kvöldið með Jóhann í kerru og Elínborgu Huldu í eftirdragi. Mig minnir að þeim hafi fundist þetta hálf skrítin uppákoma hjá okkur og svona yfirleitt en ég lét mig ekki og við skoðuðum eitt og annað í bænum sem mér leist vel á. Svo drifum við okkur heim hundblaut og köld en bara ánægð. Þegar heim var komið og við sest inní stofu þá heyrðum við allt í einu drunur og dynki. Það var flugeldasýningin sem var þá frá Tjörninni. Menningarnæturstjórinn ég hafði ekkert kveikt á þessari fugeldasýningu! Við drifum okkur út og horfðum á sýninguna út á blett. Síðan hef ég ekki klikkað á þessu atriði á menningarnótt svo það sé alveg á hreinu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.