Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
Svartur mánudagur - heimsóknarvinahugleiðing
29.9.2008 | 18:19
Heimsóknarvinur síðunnar sendi inn hugleiðingu vegna atburða dagsins:
Svartur mánudagur - mottó:
Það saxast á mannasiðina
sæmdin liggur í valnum.
Það hallast á ógæfuhliðina
og harðnar á vandræðadalnum.
-----------------------------------
Dæmalaust er hann Davíð ennþá kartinn
dregur upp úr pyttinum stórgróðaliðið.
Það hlær í manni anskotans kvikindisartin,
enda er Glitnir kominn á rassgatið - ið
Mikil er þó lukka lýðfrjálsra þjóða,
líflína til sem kemur í veg fyrir hrapið,
einkavæða ágirnd og milljónagróða.
Eftir hrunið síðan að þjóðnýta tapið.
Um snilldina tæra við sjáum víða merkin
vesalingarnir týna upp lambaspörðin.
Ráðgóðum verða notadrjúg næturverkin,
nú má rifja upp heilræðið - öxin og jörðin.
Dægurmál | Breytt 1.10.2008 kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Styttur bæjarins
28.9.2008 | 09:38
Ég hef verið að spá í þetta með styttur bæjarins og karla og konur og alla þá umræðu. Ég tók eftir því þegar við vorum í London fyrir tæpu ári síðan að þar voru mjög margar styttur hér og hvar. Margar þeirra voru af einhverjum löngu dauðum herforingjum sem ég amk. hef ekki hugmynd um hverjir voru. Mér fannst þessir herforingjastyttur dálítið fyndnar einhverra hluta vegna. Þarna voru þessir herforingjar sem engir í dag vita hvorki haus né sporð á, sitjandi á hestum í fullum herklæðum, starandi með einhverri hernaðarlegri ákefð út í loftið. Er þetta ekki bara einhver aldaspegill sem er að speglast í þessum herforingjastyttum þarna út í London? Einhver áminning um það sem var? Núna sitja herforingjarnir í byrgjum undir Pentagon og stara með hernaðarlegri ákefð á tölvuskjái ef maður á að trúa kvikmyndum.
Mín skoðun er sú að það eigi að setja fullt af styttum út um allt í Reykjavík og líka út um allt land ef menn eru þannig stemmdir. En mér finnst líka að það vanti fleiri styttur af fullklæddum nafngreindum konum. Ég held að það væri bara réttast til að ná fullri sanngirni og jafnrétti að skella út tveim og tveim styttum í einu, einni af karli og annari af konu. Styttu af Tómasi og aðra af Ástu.
Í framhjáhaldi við ég líka nefna að mér finnst að það ættu að vera miklu fleiri gosbrunnar og vatnshanar með drykkjarvatni út um allt. Ég veit að það getur verið eitthvað vesen með vatnið út af öllu þessu frosti og þýðu dæmi í veðrinu en á þessu tæknivæddu tímum hlýtur að vera hægt að bjarga því. Mér þykir alltaf frekar leiðinlegt að vatnshaninn hérna niðurá göngustígnum við Ægisíðuna er alltaf bilaður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Matsalarmálun
27.9.2008 | 08:40
Ég hlustaði í smá stund í gærkvöldi á stjórnmálamann í sjónvarpinu mínu sem gerði samansemmerki yfir kjarasamningi ljósmæðra um daginn og að skipper á bát færi að mála matsalinn á skipinu í ólgusjó. Mér finnst þetta dálítið merkileg niðurstaða hjá þessum stjórnmálamanni. Ég veit ekki betur en að alþingismenn hafi fengið dágóðar launabætur um daginn, notabene án þess að þurfa að fara í verkfall né hafa fyrir þeirri matsalarmálun á nokkurn hátt. Ég veit vel að þeir mega ekkert fara í verkfall grey fólkið en ég verð nú bara líka að benda á að þar sem Alþingi starfar aðeins um fjóra mánuði á ári, eða eru það kannski fimm, þá yrði maður etv. lítið var við það að alþingismenn færu yfirleitt í verkfall. En þeir fengu nú úthlutað launahækkun um daginn og sú launahækkun var afturvirk meira að segja. Af hverju má ekki bera þá launahækkun við matsalarmálun? En þetta var útúrdúr.
Það mun semsagt sliga þennan þjóðardall okkar Íslendinga að ríkið var nauðbeygt til að semja um 18%-23% hækkun til ljósmæðra. Ég man eftir svipuðum röksemdum þegar Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók á sig rögg og hækkaði laun hjá starfsmönnum leikskóla hjá Reykjavíkurborg. Þá komu fram stjórnmálamenn í sjónvarpið mitt og lýstu því yfir að þessi gjörningur konunnar myndi steypa landinu í glötun. Mín skoðun er sú að það eru ekki laun til handa láglaunastéttum eða launahækkun til handa kvennastétta ríkisins sem hafa sligað þjóðardallinn. Þar hafa aðrir þættir eins og máttleysisleg efnahagsstjórn og frjálshyggjufjármálamarkaður gert margfalt meiri óskunda en launahækkun ljósmæðra. Held að kallinn í brúnni ætti að hætta að velta sér uppúr fimmkallinum sem renna nú til ljósmæðra eftir síðustu kjarasamninga og snúa sér að því reyna að stemma stigu við þeim milljarðatugina sem hafa runnið viðstöðulaust til forstjóranna og lánaspegúlantanna.
Haustlitir
25.9.2008 | 17:23
Það voru fallegir litir í kringum Suðurgötuna við kirkjugarðinn í morgun. Við vorum að keyra frá hringtorginu Suðurgötuna að Skothúsveg og ég rétt náði að virða fyrir mér trén í kirkjugarðinum og götumyndina. Það er komin fallegar litasetteringar í trén og það var verulega fallegt að horfa norðureftir Suðurgötunni í morgun.
Mér finnst oft Reykjavík vera falleg á morgnanna þegar ég er að keyra leiðina yfir Skothúsveginn og yfir að Fríkirkjuvegi. Tjörnin, trén og húsin allt getur verið bara nokkuð falleg oft á morgnanna en ég held að mér finnist það oftast á haustin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lögreglutölfræði
24.9.2008 | 07:24
Ég las núna í morgun frásögn ungrar konu sem varð vitni að áras manns á vinkonu hennar í miðbænum. Vinkonurnar höfðu samband við lögregluna þar sem þær lýstu árásarmanninum og árásinni. Daginn eftir höfðu þær síðan aftur samband við lögregluna til að grennslast fyrir um það hvernig gengi með málið og hvort búið væri að handtaka manninn. Þá var ekkert slíkt mál á skrá lögreglunnar og enginn kannaðist við nokkurn hlut.
Það hefur verið ýjað að því að innbrot og ýmis afbrot gegn fólki sé að aukast hér í Reykjavík. Haldinn var m.a. fundur í Seljahverfi þar sem íbúar lýstu yfir áhyggjum sínum af fjölda innbrota i hús í hverfinu m.a. yfir hábjartan daginn meðan fólk sinnir sinni vinnu eða bara rétt bregður sér af bæ. Lögreglan var þar til svara og hélt því fram að innbrot í hverfinu hefðu ekkert aukist. Þetta væri allt bara á svipuðum nótum og áður hefði verið. Svipuð svör hafa fengist varðandi önnur afbrot, jafnvel þótt mönnum hafi fundist að hér sé um töluverða aukningu að ræða frá því áður var. En ef lögreglan er ekkert að skrá tilkynningar um innbrot og árásir þá er ekkert sérkennilegt við það að menn þar á bæ verði ekki varir við aukningu afbrota frá því sem áður var.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veðursár
22.9.2008 | 09:11
Ég er alltaf að berjast við eitt karaktereinkenni hjá sjálfri mér. Ég er semsagt veðursár. Þegar ég var yngri gat ég látið veðrið fara eitthvað rosalega í taugarnar á mér. Ég man að pabbi sagði einhvern tímann við mig þegar ég var á Króknum og veðrið á staðnum mér ekki að skapi - Guðrún vertu ekki svona veðursár.
Ég læt ekki stjórnast of mikið af veðursárindum og reyni að takast á við þetta einkenni mitt en ég játa að ég fann fyrir veðursárindum núna um helgina. Sýnist sem svo að veðrið þetta haust ætli að verða frekar leiðinlegt og ég þurfi að finna mér einhvern krók á móti bragði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ein milljón eða tvær
17.9.2008 | 17:04
Í gær voru menn í kringum mig að spá í eignir sínar í bönkunum og hvort þær væru tryggðar ef bankarnir færu nú flatt og yrðu hreinlega gjaldþrota. Ég hélt að 1,7 milljónir króna innistæður í banka væru tryggðar af einhverjum tryggingarsjóði en var þó ekki viss. Las síðan í gærkvöldi að um er að ræða um 2,5 milljónir króna. Í þeirri grein var síðan þessi gullvæga setning - fólk sem á meira en þessa upphæð í banka á bara að dreifa upphæðunum milli bankanna.
Ég er ekki mikið með nefið ofaní hvers manns koppi né buddu en það er einn fullorðinn einstaklingur sem ég veit fyrir vissu að á meira en 2,5 milljónir króna á bankabók. Umræddur einstaklingur er orðinn 82 ára gamall. Mér er það mjög til efs að hann hafi fylgst með umræðum um hugsanleg gjaldþrot bankanna né að hann eigi bara að dreifa milljónunum sínum á milli bankanna til að vera öruggur um það að tapa öllu sparifénu nema títtnefndum 2,5 milljónum. Ég þarf að drífa mig í að hringja í viðkomandi einstakling og útskýra fyrir honum að nú skuli hann bara drífa sig í að dreifa sparifénu sem víðast í bankana til að tryggja öryggi sitt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bara gera meira næst
15.9.2008 | 19:19
Hér var afmælisveisla í gær. Sonurinn verður fjórtán ára á morgun, sextánda september og við héldum uppá þann áfanga í gær. Þetta var ekki stórt partý, aðeins nánasta fjölskylda mín sem var boðin til veislu.
Afmælisbarnið fékk að ráða veisluföngum og hann pantaði eina Pavlovu sem er hans uppáháldsterta. Svo gerði ég eina nýja uppskrift, berjatertu en pabbi og mamma eru í bænum og höfðu með sér yndislega góð fersk aðalbláber úr Skagafirði. Til að balansera þessi sætindi bauð ég síðan uppá heita brauðréttinn minn sem er mitt klassíska meistarastykki og vekur alltaf lukku. Ég gerði bara einn skammt í þetta sinn af því mér fannst ekki það margir í veislunni. Brauðrétturinn kláraðist fyrst af öllu og Kristel Eir, 11 ára frænka mín kvaddi mig í veislulok með þessum orðum:,, Gúa, brauðrétturinn þinn er alveg rosalega góður. Mundu bara að gera meira af honum næst."
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jafnlaunavottun
14.9.2008 | 09:44
Ég get ekki að því gert en ég hef ekki mikla trú á þessu nýjasta jókerspili til að jafna laun kynjanna. Jafnlaunavottun. Hvaða ávinningur á að vera fyrir fyrirtæki til að fá þessa vottun ég spyr bara. Núna viðgengst launamisrétti kynja í landinu hjá fyrirtækjum og stofnunum. Þessi launamismunur viðgengst án þess að fyrirtæki eða hið opinbera skaðist á nokkurn skapaðan hlut. Því í ósköpunum ættu þessi fyrirtæki og opinberar stofnanir að fara út í þann kostnað og naflaskoðun sem það væri að fá Jafnlaunavottun? Nema það sé opinber stefna að opinberar stofnanir og fyrirtæki verði skyldug til að kaupa vörur og þjónustu aðeins af fyrirtækjum sem hafi slíka Jafnlaunavottun. Að kaupa vörur og þjónustu frá fyrirtækjum sem ekki hefðu slíka vottun væri hreinlega bannað. Þá etv. gæti slíkt fyrirbæri farið að bíta. Fyrr ekki.
En þá væri rétt að byrja á þar og setja slíkt bann í lög og reglugerðir. Tímasetja það svona tvö ár fram í tímann. Á þeim tíma ætti að gefast tækifæri til að koma á vottunarferlinu og votta fyrirtæki og hið opinbera í bak og fyrir. Það er ef menn eru að meina eitthvað með þessu. Sem eins og fram hefur komið ég hef ekki nokkra trú á. Tel að hér sé verið að setja fram enn eitt jókerspilið á spilaborðið og að réttara væri að leiðrétta laun kvennastétta og kvenna og meta þeirra störf, nám og ábyrgð til jafns við karlastéttir og kara. Byrja á því að leiðrétta laun ljósmæðra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað er mátulegur prósentumunur?
13.9.2008 | 08:19
Formaður Samfylkingarinnar sagði í samtali við Stöð 2 í gær að vilji væri fyrir því í ríkisstjórninni að leiðrétta kjör ljósmæðra. Það væri hins vegar of mikið í einu skrefi að leiðrétta laun ljósmæðra um 25%.
,,Það væri fróðlegt að vita hvað henni þætti mátulegt að konur væru mörgum prósentum undur körlum í launum" segir Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélagsins í lok þessarar fréttar í Stöð 2 í gærkvöldi vegna þessara ummæla formanns Samfylkingarinnar. Ég tek undir þetta hjá formanni Ljósmæðrafélagsins. Ég tel það svo sannalega tímabært að Samfylkingin leggi spilin á borðið og upplýsi hvað fylkingin telur mátulegan prósentumun á kjörum karla og kvenna hér á landi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)