Tangó týnd

Kisan Tangó hefur ekki komið heim til sín í þrjá sólahringa.  Hún á reyndar ekkert heima hérna hjá okkur, hún er í pössun hjá ömmu eigandans sem er önnur systranna á loftinu.  En Tangó tók þá ákvörðun fyrir ári síðan að taka okkur fjölskylduna í fóstur og hefur búið hér á heimilinu í góðu yfirlæti síðan.  Og stjórnar þessu heimili algjörlega.  En núna eru hún semsagt stungin af og vitum við ekkert hvar hún heldur sig.  Hún hefur svo sem tekið upp á þessu áður, í fyrra hvarf hún í eina viku og var okkur alveg hætt að lítast á blikuna þegar hún birtist aftur.  Síðan þá hefur hún staðið sig vel í því að mæta á hverju kvöldi hingað heim.  En nú er hana hvergi að sjá né heyra.  Ég er að vona að ekkert hættulegt hafi komið fyrir Kisuna Tangó og að þetta sé einhverskonar vorhugur og ástarbrími sem hefur heltekið hana með þessum hætti.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband