Maísólin

gefur mér orku, það er ekki spurning.  Settist út á svalir með kaffibolla í síðdegismaísól í gær og áður en ég vissi af var ég komin út í garð vopnuð skóflu og farin að berjast við tvær runnarætur sem lágu út í hlaðna haunvegginn en það að laga hann er eitt af garðverkum sumarsins.  Þar sem ég var að bjástra við ræturnar þá birtust systurnar á loftinu, önnur á hjóli en hin á bíl og þær voru svo áhugasamar með að hjálpa við rótarbaráttunna að áður en varði var björninn unninn og ræturnar lágu í valnum.  

Þarf að verða mér út um þökur í dag einhversstaðar í borginni, veit ekki hvar hægt er að nálgast slíkt það þarf töluvert að endurnýja grasið og laga til meðfram beðum.  Ef verður aftur svona frábær maísól seinni partinn í dag þá er aldrei að vita hverju verður áorkað í henni blessaðri. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband