Matarholan
14.5.2008 | 07:06
Það er víða að finna matarholur fyrir fyrirtækin af ólíklegustu gerðum. Ég lagði á mig núna í morgunsárið að kíkja á þetta frumvarp fjármálaráðherra sem er núna í umfjöllun í þinginu. Ég skil þetta frumvarp þannig að fella eigi niður skatt af arði félaga af hlutabréfakaupum. Það finnst mér dálítið einkennileg ráðstöfun. Mér finnst að ríkið hafi staðið sig mjög vel í því að lækka skatta á fyrirtæki en ekki staðið sig eins vel í að lækka skattaálögur á einstaklinga. En þegar ég les umsögn með frumvarpinu þá kemur fram að hér virðist vera um skatt að ræða sem fyrirtækin geta síðan frestað í það óendanlega að greiða í ríkissjóð??
-----
Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
----Í skattskilum lögaðila kemur ekki fram hversu stór hluti tekna er vegna söluhagnaðar og liggur því ekki fyrir hversu mikill skattur er greiddur af honum. Eins og fram kemur í almennum athugasemdum við frumvarpið eru líkur á að skatturinn skili fremur litlum tekjum bæði vegna þess að í reynd er hægt að fresta skattlagningunni óendanlega og vegna þess að mörg íslensk félög hafa flutt eignarhald á hlutabréfum til landa sem ekki skattleggja söluhagnað.---
------
Ef ég skil þetta rétt þá eru semsagt núna í gildi lög um skatt um söluhagnað af hlutabréfakaupum félaga sem eru þannig að hægt er að fresta skattlagningu óendanlega og því hefur ríkissjóður ekki haft neinar skatttekjur af þessum hagnaði félaga. Því er talið réttara að hreinlega fella þennan skatt niður. Afar sérkennilegt mál í alla staði, en mjög skiljanlegt að enginn greiði skatt sem hægt er að fresta greiðslu á í það óendanlega - það er ljóst.
Hamfarir
13.5.2008 | 07:47
Það er lítið lát á hamförum í heiminum þessa dagana. Mér leist ekkert á blikuna þegar fyrstu fréttir komu af jarðaskjálftanum í Kína því stax var hann áætlaður um 7,8 -7,9 stig á richterskvarða. Ég var í gærkvöldi að sýna Jóhanni Hilmi hvernig richterskvarðinn er uppbyggður og við tókum einn skrans á því hvað er lógarítmiskt fall. Það er dálítið erfitt að átta sig á því hve orkan stækkar gríðarlega sem losnar við hvert stig sem ofar dregur í kvarðanum. Því er oft notað útskýringingarnar um hversu slæmar afleiðingar jarðskjálfta af þessari og þessari stærð geta orðið. Ekki ósvipað og útskýringar á vindhraða sem ég lærði einhvern tímann og fannst mjög skemmtilegar. Flagg bærist í vindi og allt það.
En aftur að Kína og jarðskjálftanum þar. Ég sá að enska wikipedia var þegar búin að setja upp síðu um jarðskjálftann. Þar er ýmiss fróðleikur svo sem um staðsetningu skjálftans en ég var að vona þegar fyrstu fréttir af skjálftanum bárust að hann hefði verið einhvers staðar í strjálbýli. Sem sýnir best vankunnáttu mína á Kína - er slíkur staður sé til í því fróma landi? Kannski í fjöllunum einhvers staðar. En skjálftinn var ekki í neinu strjálbýli því miður.
Stærð skjálfta sem er 7,9 er hægt að gera sér í hugalund með því að skoða eftirfarandi útskýringar í wikipedia á kvarðanum: 7.0-7.9 Major Can cause serious damage over larger areas. 8.0-8.9 Great Can cause serious damage in areas several hundred miles across.
Ég hef áður bloggað um upplifun mína af Skagafjarðarskjálftanum 1963. Stærð hans var um 7 stig en upptök skjálftans var útá firðinum Skaga. Dalvíkurskjálftinn árið 1934 var 6,4 stig á richter en upptök hans var eiginlega beint á Dalvík. Ég hef þessar upplýsingar úr þessu riti. Í þeim skjálfta urðu mjög miklar skemmdir á húsum á Dalvík og í Svarfaðardal en þó mest á Dalvík. Ég fann þessar upplýsingar á netinu um 17. júní skjálftann árið 2000, stærð hans hefur verið 6,5 stig. Þá urðu þó nokkrar skemmdir á húsum á Suðurlandinu.
Hér á Íslandi eru hús hönnuð og byggð til þess að standast ákveðnar hönnunarforsendur varðandi lárétta krafta. Ég þekki ekki til kínverskra álagsstaðla og hönnunarforsendna fyrir byggingu mannvirkja. En þessi jarðskjálfti í Kína var mjög stór og því ljóst um leið og fyrstu fréttir komu að þarna hefðu orðið rosalegar hamfarir og með hrikalegum afleiðingum eins og fréttir frá Kína bera með sér.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pabbi og tæknin
11.5.2008 | 13:33
Pabbi minn málar vatnslitamyndir og semur ljóð sem hann setur á myndirnar. Hann gaf mér í jólagjöf myndina sem ég set hér inn að gamni þó myndartakan hafi ekki tekist sem skyldi með þessu flassljósi sem kemur á myndina. Myndin er af Tindastól og á henni er síðan þessi vísa:
Tindastóll áfram eins og þú sérð,
óbreyttur getur staðið.
Þessvegna líka ég vanda verð
vísuna mína á blaðið.
Myndirnar hans pabba eru mjög fínar að mínu mati og aðrir eru mér sammála. Pabba finnst best að mála myndirnar úti í náttúrunni þar sem litir, birta og skuggar eru beint í æð. En það hefur ekkert viðrað sérlega vel til útivatnslitamálunar í Skagafirðinum upp á síðkastið. En nú hefur karl faðir minn tekið tæknina í sína þágu. Hann fer út með nýju digitalmyndavélina hennar mömmu og finnur góðan stað í firðinum Skaga með málaravænu útsýni. Byrjar á því að mynda og mynda og að myndatöku lokinni þá er hægt að byrja á myndinni á staðnum ef veður leyfir. Síðan er haldið heim á Krókinn og myndirnar hlaðnar inní tölvuna. Þá getur listmálarinn séð mótívið í tölvunni og haldið áfram með myndina í stað þess að reyna að klára hana eftir minni. Tóm snilld segir faðir minn.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Snjór og hálka
10.5.2008 | 09:45
Gunnar hringdi norður í Svarfaðardal í gærkvöldi og náði í Óskar bónda í Dæli. Þá var snjókoma í Dalnum væna. Maður sér á vefmyndavélum Vegagerðarinnar að það er kuldalegt um að lítast á fjallvegum fyrir norðan. Ég man eftir því að hafa verið í fermingu í dalnum sem var haldin um 10 júní og það snjóaði nóttina fyrir ferminguna það mikið að það varð hvítt niður að á. Hitastigið fermingardaginn var um plús 4 gráður á Celsíus. Eða eins og einn íbúi á Kópaskeri sagði við mig þegar ég var í heimsókn það eitt sumarið: Hitastigið hér á Kópaskeri þetta sumarið er búið að vera eins og maður vill hafa kjörhitastig í ískápnum sínum. Í kringum fjórar gráðurnar. Svona getur norðanáttin verið erfið við norðlendinga, eins og sunnanáttin er góð og yndisleg.
Fyrsta sumarferð okkar í ár í Dalinn væna verður farin í tengslum við sautjándajúní jublíem bóndans. Það er nú meira en mánuður þangað til þannig að ég er ekkert farin að örvænta með að snjóa hafi eitthvað leyst þegar við mætum á svæðið. En áttin hefur verið full norðanstæð sem af er vorinu. Og ekki hjálpar það til þegar heldur áfram að snjóa si svona öðru hvoru.
Vespers, Rachmaninoff
9.5.2008 | 09:51
Set hér inn sjötta hlutann af þessu frábæra verki, Vespers eftir Sergei Rachmaninoff þessi hluti er:
6 hluti: Богородице Дево, радуйся - Rejoice, O Virgin
Hér er þessi Maríuhylling flutt af rússneskum söngvurum og fundið af youtube. Gunnar er búinn að kaupa miða handa okkur á tónleikana með Módettunni í Hallgrímskirkju á mánudaginn - hlakka til, hlakka til.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þrift
6.5.2008 | 21:06
Sat áðan og stytti ermar í kápu sem mér hefur áskotnast og festi tölur og hlustaði um leið á Kastljósið þar sem rætt var um sóun okkar Íslendinga. Mér fannst ég á þeirri stundu vera einmitt eitt stykki gott exemplar um þriftuga konu þar sem ég var þá að laga til kápu þannig að hún geti nýst mér. Mér fannst einhvern veginn eins og orðið þrift og að vera þriftug þýddi að vera nýtin og fara vel með en þar sem ég var ekki alveg pottþétt á þessu hjá mér þá fór ég og gáði í íslensku orðabókina og þar segir: Þrift - þriftar KV velmegun, velgengni, gengi.
Þannig að eitthvað hefur nú skilningur minn skolast til en ég er samt eitthvað svo pottþétt á að hafa heyrt þetta notað sem jákvæð lýsing á einstaklingi sem fer vel með það sem honum áskotnast og nýtir vel hlutina án þess að vera nirfill eða nískur. Ég hef þá skoðun á sjálfri mér að ég sé hvorki nirfill né nísk en þriftug er ég. Þetta kvöldið að minnsta kosti.
Hagaskóli 50 ára
5.5.2008 | 19:17
Í ár eru 50 ár frá því að Hagaskóli hóf starfsemi í núverandi húsnæði og verður haldin afmælishátið af þessu tilefni í lok maí. Það hafa verið einhverjar hugmyndir á lofti hjá nemendum og starfsmönnum með hvaða hætti afmælishátíðin á að fara fram. En fyrst þarf að takast á við vorprófin sem eru framundan en að þeim loknum ætla nemendur og starfsmenn að taka höndum saman og hefja undirbúning afmælishátíðarinnar. Ég vona og er næsta viss um að bæði undirbúningur og framkvæmd afmælis verður bæði skemmtilegur, lærdómsríkur og gefandi fyrir þá aðila sem að málum koma.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Alþjóðlegi hláturdagurinn
3.5.2008 | 08:20
er á morgun sunnudag þykist ég hafa séð einhversstaðar. Ég er vön að segja að Ásta Valdimarsdóttir, hláturkennari sé vinkona mannsins míns, en hún er nú reyndar ágætis vinkona mín líka. Ásta kenndi Gunnari söng í Söngskólanum í Rekjavík hérna á hinni öldinni og hafa þau haldið góðu sambandi síðan. Þegar hún Ásta kom forfrömuð í hláturfræðum hingað til Íslands fyrir nokkrum árum síðan þá bauð hún okkur fjölskyldunni á hláturnámskeið sem hún var með í Norræna húsinu. Okkur frannst þetta svona svolítið skrítið en af því okkur líkar svo vel við Ástu og höfum fulla trú á því að hún tæki ekki upp einhverja dellu þá mættum við á námskeiðið fjölskyldan og prófuðum að hlæja undir leiðsögn Ástu í takt við klapp og nokkrar mismunandi hláturgerðir. Það er svona karlahlátur, konuhlátur, í-hí-hí hlátur ha- ha -ha -hlátur - o.s.frv. ekki ósvipað laginu hans Ómars Raganssonar í den. Okkur Jóhanni Hilmi fannst ljónahláturinn lang skemmtilegastur og getum við ennþá notað hann til þess að fara að hlæja þegar sá gállinn er á okkur.
Auðvitað líður manni dálítið sérkennilega að standa með einhverju ókunnugu fólki og vera að klappa og hlægja. En það vandist ótrúlega fljótt - og Ásta Valdimars er náttúrulega mjög flink í því að fá fólk til þess að hlægja. Það er gott að hlæja og örugglega mjög hollt. Það er líka frábært að vera bara að hlæja til þess eins að hlæja en vera ekki að hlæja að einhverjum eða einhverju öðru en hlátrinum sjálfum. Þetta er nefnilega alþjóðlegi hláturdagurinn en ekki alþjólegi aðhláturdagurinn.
Samstaða og samvinna
1.5.2008 | 08:45
Til hamingju með daginn. Baráttudagur verkalýðsins 1. maí er runninn upp. Það er hollt á slíkum degi að huga að því hverju samtakamáttur og samvinna getur áorkað. Mér finnst gildi samvinnu og samráðs oft vera vanmetin í samskiptum launþega og atvinnurekenda. Oft er einhver ákvörðun pressuð í gegn án nægjanlegs samráðs eða samvinnu við launþega og þá notuð margvísleg rök fyrir ákvörðunum svo sem hina ýmstu vinnutilskipanir og lagabálka. Oft geta launþegar ekkert annað gert en bitið í það súra epli sem að þeim er rétt. Slíkt skapar úlfúð og leiðindi sem kemur fram í slæmu vinnuumhverfi. En hingað til hefur það ekki þótt góð lexía að breyta vinnufyrirkomulagi hjá einhverri starfsstétt með þeim hætti að kjör starfstéttarinnar versni. Ef breyta verður vinnufyrirkomulagi þá verður að ganga þannig í þau mál að kjörin versni ekki við nýtt og betra fyrirkomulag. Því þá er viðbúið að launþegi grípi til sinna ráða, saman eða einn og sér. Samstaða launþega þegar slík staða er komin upp er þá miklu heillavænlegri til árangurs en sundrung. Sameinaðir stöndum vér sundraðir föllum vér, gömul sannindi og ný.
Norðangarri í garði
29.4.2008 | 17:46
Það gengur mikið á hér við norðurhlið hússins Í fyrsta lagi er svakalega kalt þarna úti núna. Í öðru lagi eru nágrannarnir búnir að láta fella tvö stór aspartré sem voru við lóðamörkin og skyggðu bæði á þeirra hús og á okkar garð. Það mættu fimm vaskir piltar frá einhverju garðfyrirtæki og í gang fóru keðjusagir og hviss pó eftir nokkuð puð og mikinn keðjusagarsöng lágu aspirnar í valnum. Dálítið merkilegt að spá í hve stuttan tíma það tók að saga niður þann árafjöldavöxt. Ég held að aspir séu ekki góð garðtré í svona litlum görðum eins og eru í þessum húsum okkar á þessum slóðum. Aspir þurfa mikið pláss þegar þær vaxa og dafna og taka mikið til sín bæði rótarkerfið og krónan. Þær þurfa því miklu meira pláss en til staðar fyrir slíkan gróður í meðal reykvískum garði. Því skil ég vel að nágrannar mínir sem voru hættir að fá sól á svalirnar sínar hafi tekið þá ákvörðun að láta fella aspirnar.
Þannig að nú verður sól lengur í norðurgarðinum mínum þetta sumarið en hingað til síðan ég flutti í þetta hús og er ég ánægð með það. Í þessum hluta garðsins er oft mjög gott á morgnana á sumrin áður en hafgolan kemur. En núna þessa stundina er þarna ískalt og hvasst og bara sunnlenskur norðangarri. En þeir feðgarnir láta það ekki á sig fá. Fermingardrengurinn ákvað nefnilega að fá að kaupa trampólín fyrir hluta af fermingarpeningunum og studdi móðirinn það heilshugar. Fjárfest var í trampólíni í dag með öryggisneti og alles og eru þeir núna úti að bauka við að reyna að setja dýrindið saman. Það gengur frekar hægt en þeir jaxlast þetta piltarnir. Ég aftur á móti hlakka til að fá að prófa að hoppa á trampólíninu. Það var keypt með extra góðri dempun þannig að það á alveg að þola mig.